My world

24.09.2006 19:55:25 / Helga

Endir, Finito, The End & fleiri orð á útlensku sem þýða að þetta sé búið


Hér með tilkynni ég það formlega að þessi síða er dauð.
Búin að vera.
Komin yfir móðuna miklu.
& svo framvegis.

[ www.frilsi.bloggar.is ]

Er málið í dag
Ásamt

[ http://blog.central.is/haiemm ]

Takk fyrir mig

//Helga
 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 19:32:39 / Helga

//Moving//

Hún er flutt// Komin með aðra síðu

{ www.frilsi.bloggar.is }

Hún hefur samt ekki gefið þessa upp á bátinn.

Blogg hér fyrir neðan.

Helga kveður.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 19:18:48 / Helga

Samræmd próf; Lokaferð & Naría

  

Ég er búin að fá einkunnirnar úr samræmdu prófunum. Ánægð? Já ýkt ánægð.

Íslenska: 9.5

Stærðfræði: 9.0

Enska: 9.0

Danska: 8.5

Samfélagsfræði: 8.5

Náttúrufræði: 7.5

Kemst á 103 í öllu. Nú get ég farið að hafa áhyggjur af einhverju öðru. Eins og til dæmis vinnunni sem byrjar eftir 8 daga. Hvað á ég eiginlega að gera? Labba inn í SS alveg:"Góðan daginn! Hvað á ég að gera?" Held ekki.

Lokaferðin. Hún var snilld. Við fórum í River Rafting & ég held að ég hefði ekki getað verið fljótari að skipta um skoðun á þessu. Ég var ekkert smá hrædd þegar við vorum að setjast í bátinn en þegar 5 mínútur voru liðnar var ég hlæjandi eins & geðsjúklingur. <3 Ég & Sara ræddum aðeins um fullkomnum á miðvikudagskvöldið. Sumar manneskjur eru bara of fullkomnar. Ég dissaði Danna of mikið sama kvöld. Hans sök. && síðast en ekki síst sváfum við 4 Óttar stakk af. í einni klessu. Danni svaf á gólfinu.

En já, nú er ég bara búin að vera að nördast heima hjá mér. Horfði á The Chronicles of Narnia í gær. Edgar sagði alltaf Naría. og the Recruit. Er Colin Farrel ólöglega fallegur eða já? Ætlaði líka að fara í sólbað úti á palli í gær en nei nei, þegar ég var búin að koma mér ýkt vel fyrir kom einhver meindýraeyðir! Jibbý.

Nenni ekki að tjá mig meira.

//Helga


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 11:16:34 / Helga

Countdown

  

// 2 tímar og 20 mínútur í lokaferðina.

Grunnskólagöngu minni lýkur eftir 1 viku og 3 daga. Ég verð 16 eftir 3 mánuði og 29 daga. Af hverju líður tíminn svona hratt? Hvað ef ég vil ekki verða fullorðin? Hvern á ég þá að tala við?

American Idol 5 lauk í gær. Taylor Hicks vann. Nú á Ameríka 5 idol. Er það ekki nóg? Ég sá Clay Aiken. Hárið á honum var fallegt. Eins og hann sjálfur. Gaurinn sem var að þykjast vera hann fékk sjokk þegar hann birtist. Ég skil hann vel.

Beauty & the Geek. Það skil ég ekki. Sterotypes. Það er verið að gefa það í skyn að fallegar stelpur séu heimskar. Og að gáfaðir Nördar gaurar séu ljótir. Eða það fannst mér.

Danska Danska Danska. Af hverju þarf hún að vera svona hrikalega leiðinleg? Ég var í munnlegu prófi áðan. Hvernig gekk? Illa eða vel. Annaðhvort hlýtur það að vera.

// 1 tími og 50 mínútur.

//Malfoy Helga


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 16:27:28 / Helga

Busy people don't write blogs...

    

Vá ég hef verið á fullu síðan á fimmtudaginn. Hef ekkert komist í tölvuna þannig að bloggið hefur setið á hakanum hjá mér.

Á föstudaginn fór ég í bæinn á tónleikana í Fíló. Hörpulingz komst ekki þannig að ég fór bara með mömmu, Edgari & Áslaugu. Tónleikarnir voru geðveikir en ég var hálf slöpp & sofnaði næstum því. Á laugardaginn var svo karníval & svoleiðis í Fíladelfíu & auðvitað var ég þar. Eurovision partýið í ár var heima hjá Erdnu & Óla & ég kaus Litháen, snilldar lag. Sunnudagurinn var samkomudagurinn. Fyrst var samkoma hérna hjá okkur á Akranesi & svo brunuðum við í bæinn á hátíðarsamkomu í Fíladelfíu. Forsetinn kom & forsætisráðherrann líka. Forsetinn er fyndnari.

Á mánudaginn var svona Coopertest í íþróttum sem þýðir einfaldlega að við þurfum að hlaupa x marga hringi á 12 mínútum. Geðveiki! Ég hélt ég myndi deyja, með hálsbólgu & allt. Kalt í hálsinum & á eyrunum. Þessi geðveiki var klukkan 8 á mánudagsmorgni. Sniðugt. Skrapp til tannza í bænum & hitti Maríu & Iðunni. Hef líka tekið þá ákvörðun að reyna að halda mér frá strætisvögnum. Sumt fólk er bara shaky.

Í gær fór ég svo í starfskynningu hjá Íslensku Auglýsingastofunni. Það var ótrúlega gaman & fræðandi. Fékk m.a. að fara með reddaranum & sjá eina af stærstu prentsmiðjum landsins & ýmislegt fleira.

Eins & sést er allt búið að vera á fullu hjá mér þannig að ég hef ekkert bloggað. En þetta blogg er kannski ekkert spes, en hey það er blogg.

//Helga


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 15:47:06 / Helga

People will only disappoint you...

  

Erum við að tala um að skólinn sé geðveikur? Og þá er ég ekki að meina að hann sé geðveikt skemmtilegur eða geðveikt fallegur. Nei nei, ekkert svoleiðis. Ég er bara með einhvern heilan helling af verkefnum sem ég á annað hvort eftir að gera eða skila.

  • Danska; Munnlegt Próf {á að segja frá Hörpulingz}
  • Enska; Eitt Stykki Ritgerð {John F. Kennedy/ Ku Klux Klan}
  • Samfélagfræði; Viðtal við Stjórnmálamann {Dagur B. Eggertsson}
  • Náttúrufræði; 10 Glæra PowerPoint um Íslenskan Fugl {Tjaldur}
  • Stærðfræði; Gera Könnun & Súlurit með niðurstöðunum

Oh joy! Maí verður yndislegur mánuður fyrir mig... En sem betur fer eru bara 3 vikur & 3 dagar þangað til að við úskrifumstt. Og þá verð ég ekki lengur grunnskólapakk. Það verður indælt.

Ég & Hörpulingz ætlum á tónleikanna í Fíló á föstudaginn, nema náttúrulega ef að systkini mitt velur akkúrat þann dag til að koma í heiminn. En eins & Hörpulingz orðaði svo vel: 'Don't you dare having a baby on friday'.

Annað blogg kemur þegar ég hef eitthvað meira að segja //

//Helga

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 18:19:45 / Helga

Betri tímar

  

Þá er sálarkvölum mínum loksins lokið. Námsmatsstofnun kallar þær Samræmd Próf en sálarkvalir er rétta orðið yfir þetta. Ég held að ég hafi aldrei áður verið eins kvíðin & þessa 8 daga sem ég þurfti að læra fyrir próf. En eins & ég skrifaði áður er þeim lokið & óþarfi að kvelja sig meira á þeim, nema náttúrulega á biðinni eftir einkununum.

Á mánudagskvöldið horfði ég á O.C & hef komist að þeirri niðurstöðu að handritshöfundarnir hljóta að vera snillingar. Hvernig tekst þeim eiginlega að koma einhverri dramatík in í hvern einasta þátt? Ég er alla vega ekki svona hugmyndarík sem hlýtur að útskýra afhverju ég er ekki búin að frá símtal frá framleiðendunum.

Á mánudaginn {gerist allt á mánudögum hjá mér?} hló ég eins & geðsjúklingur yfir náttúrufræðiglósunum. Það stóð nefnilega 'svartur dreki' í staðinn fyrir 'svartur dvergur'. Ok, ég geri mér grein fyrir því að þetta var miklu fyndnara þegar ég las þetta.

Geðbilaðar! Það er orðið til að lýsa nýju buxunum mínum. Þær eru svona svartar & þröngar & þægilegar & geðbilaðar & töff... Minntist ég á það að þær eru geðbilaðar?? Anyways, þá er ég alvarlega að hugsa um að giftast þeim en ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að það sé lögbrot.

Vill einhver horfa á Jarhead með mér? Eða Day After Toomorrow? Eða bara einhverja mynd sem Jake Gyllenhal leikur í? Einhver? Líklega ekki.

Ein pæling í lokin // Á ég að fara yfir á bloggar.is ?? Skoðanir þakka ykkur fyrir.

Helga

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 16:13:54 / Helga

....

                  

Á maður að setja eitthvað þarna í 'Titill'? Alla vega verð ég alltaf ákaflega hugmyndasnauð þegar það kemur að því að nefna bloggin mín.

Núna nálgast samræmdu prófin eins og óð fluga og verður maður því að fara að læra og helst gera ekki neitt annað. En hér sit ég í tölvunni og er að blogga. Hmmm... Ég var reyndar að skrifa inn náttúrufræðiverkefni sem að við þurfum að skila á morgun þannig að ég tel mig hafa lögmæta afsökun. Var líka að lesa í samfélagsfræði áðan. Duglega ég.

Sumarið kom á fimmtudaginn en ég get ekki séð að veðrið hafi tekið eftir því. Haglél & rigning um daginn. Ekki er það sumarlegt veður á mínum mælikvarða.

Ég hef ákveðið að skella mér í Reykjavíkina helgina eftir þau samræmdu, skemmta mér aðeins. Ég verð reyndar að finna mér einhvern stað til að vera á, en það er seinnitímavandamál.

Vandamál vikunnar// Ég þarf að skila inn blaði um hvert mig langar í starfskynningu. Vandamálið? Ég hef ekki grænan grun um hvert mig langar að fara.

Ég ætla svo að gerast hetja í lokaferðinni okkar {30 maí - 1.júní} & fara bæði í flúðasiglingu & klettasig. Ég er alveg dauðhrædd við þetta bæði en maður verður bara að bíta á jaxlinn & vona að hann brotni ekki.

Ef einhver á einhver lög með FOB eða TA-AR má sá hinn sami láta mig vita. Tafarlaust.

//Move along

Helga

P.S Bleikt bíður betri tíma


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 18:38:28 / Helga

Hið svokallaða páskafrí

Hið svokallaða páskafrí mitt er opinberlega hafið. En þetta páskafrí er í rauninni ekki páskafrí. Afhverju? Nú, af því að ég mætti í aukatíma í dag & fer á morgun & á miðvikudaginn. Skandall.

En það er samt ekki eins og ég sé neydd til að mæta í þessa tíma. Nei, nei ég geri þetta af fúsum & frjálsum vilja. Í dag var íslenska & náttúrufræði. Veðrið var alveg ágætt þegar ég lagði af stað en ég væri ekki að ýkja ef ég segði að ég hefði synt heim. Það var grenjandi rigning & svo kom haglél á mig líka. Alveg yndislegt.

Í gær skellti ég mér í fermingarveislu til frænku minnar & svo á samkomu. Samkvæmt nýjustu rannsóknum er Elí Þór Harry Potter. Í alvöru. Hann er með ör á réttum stað & það verður alveg svakalega rautt þegar Voldemort {Viddi} kemur nálægt honum. Alveg dagsatt.

Ég ætlaði víst að bulla eitthvað meira en verð víst að gera það seinna. Ég á víst að hætta í tölvunni.

Helga hefur tjáð sig.

//Takk


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 16:41:40 / Helga

Góða manneskjan bloggar

Í dag gerði ég góðverk. Þrjú góðverk til að vera aðeins nákvæmari. Þau tengdust öll stærðfræði.

  • Ég hjálpaði Sunnevu í stærðfræðitíma.
  • Ég hjálpaði Dúu í stærðfræðitíma.
  • Ég hjálpaði Kristínu í stærðfræðitíma.

Þetta eru kannski frekar einhæf góðverk en ég get bara ekkert að því. Þær þurftu bara hjálp í stærðfræði. Ef þær hefðu þurft hjálp í einhverju öðru hefði ég hjálpað þeim með glöðu geði.

Uss ég er alveg svakalega ljóshærð. Gleymdi að minnast á það að ég er komin með vinnu. Í Sláturfélagi Suðurlands, nánar tiltekið á Hvolsvelli. Ég mun búa heima hjá Kristínu & Jarek en þau fara líklega til Póllands í 4 vikur og þá verð ég ein á Hvolsvelli.

Jibbý!

Já, ég veit ekki alveg hvað ég er að blogga um... Blogga kannski meira þegar ég hef eitthvað til að blogga um.

Laters

Helga//


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 20:53:29 / Helga

{Do you really want to live forever?}

Status// Ekki lengur þunglyndiskast.

Líður miklu betur heldur en í gær. Held mér hafi aldrei liðið eins einmanna. Furðulegt hvernig það kemur alltaf bara svona allt í einu.

 Ásthildur bjargaði mér alveg. Hringdi í hana og við töluðum saman í klukkutíma. Elska þig.

Hlustaði á Forever Young endalaust í gær. Er ástfangin af laginu og ef einhver á það má hann gjarnan senda mér það.

Wishing to be// Einhversstaðar með vinum mínum.

Sakna ykkar allra óendanlega & get ekki beðið eftir að hitta ykkur aftur. Ég elska ykkur.

Helgin// Klúður.

Samskipaörðugleikar í gangi í fjölskyldunni minni. Fyrst gleymdist að segja mér að ég ætti að fara í fermingarveislu í dag & ég þurfti að vera í gallabuxum í veislunni. Svo áttu skórnir mínir að koma með ömmu í bæinn á föstudaginn en hún gleymdi þeim & min mor gleymdi að segja mér að ég gæti náð í þá á Selfoss á laugardaginn.


Mæli með www.blog.central.is/cherone

Luv

//Helga

[Forever young, I want to be forever young
Do you really want to live forever, forever, forever?
Forever young, I want to be forever young
Do you really want to live forever, forever, forever? ]


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 16:03:11 / Helga

Feeling this...

Miss You So Much It Hurts

I need my friends...


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 17:32:39 / Helga

Blogg? Ekki svo vitlaus hugmynd. Ég hef gjörsamlega vanrækt þessa síðu mína að undanförnu en ég er með afsökun. Ávallt tilbúin með afsakanir. Tölvan, þetta yndislega tæki, er búin að vera biluð. 'Fucked up' á engils-saxneskunni. En nú er hún komin í lag þannig að ég hef ekkert til að fela mig á bak við. Blogg skal það vera.

Líf mitt er kannski ekki alveg það áhugaverðasta í augnablikinu en ég verð nú samt að reyna að koma því út úr mér hvar ég hef alið manninn.

Ég hef alltaf verið þekkt fyrir að vera svolítið nörd inn í mér og um daginn stökkbreyttist  þetta nörd og braust út. Ég komst nefnilega í topp 10 í Stærðfræðikeppninni og eins og það væri ekki nóg þá varð ég í 6.sæti. Nördið hefur samt haldið sig inni síðan þá en á maður ekki bara að vona að það brjótist út í þeim samræmdu?

Skellti mér á unglingamót um helgina með þá vitneskju í farteskinu að ég hugsaði eins og morðingi. Það er ávallt gaman. Fékk far með Hafliðanum sem án mín hefði endað í Keflavík. Helgin var æðisleg og núna sakna ég vina minna ákafara en allt. Fékk svo far með Majónesinu [Jóhannesi] til baka en aðeins á Hvolsvöll. Fékk svo óþægilegasta símtal ævi minnar þar sem Ásthildur sagði mér að Hafliði hefði velt bílnum. Hringdi í hann og komst að því að það var allt í lagi með alla. Leið miklu betur en hafði samt áhyggjur allan daginn. Týpísk ég.

Stuttur skóladagur í gær þar sem við í 10.bekk vorum að fara í skólaferð. Við skelltum okkur í Bláa Lónið í roki. Mæli eindregið með því, sérstaklega ef þú fílar að fá allt vatnið upp í þig. Þegar við vorum búin í Bláa Lóninu fórum við upp í Kringlu og fengum okkur snæðing eins og það var orðað á miðanum sem við fengum. Ég og Sara sátum víst 'einar' og 'úti í horni' með 6" Dominos flatbökurnar okkar. En hey, hver þarf fullt af fólki þegar hann hefur eina manneskju sem er skemmtileg? Eftir Kringluna fórum við í Austurbæjarbíó en við vorum nefnilega að fara á Verzló sýninguna 'Á tjá og tundri.' Eitt orð: VÁ! Og þá er ég ekki að tala um sýninguna í heild, nei, hún hefði mátt vera betri. En Leifur nokkur Eiríksson fékk alla mína athygli og hann fær þetta 'Vá' hér fyrir ofan. Svo var frænka mín þarna líka. Alltaf betra.

Er að pæla í að skella mér í höfuðborgina á föstudaginn og kíkja á unglingasamkomu. Hún Dagný frænka mín bauð mér gistingu áðan og sagði mér frá því að hún væri búin að fá stærra rúm. Get varla beðið eftir því að máta það. Fer svo til hans föður míns á laugardaginn. Ég mun einnig eyða páskafríinu mínu í sveitasælunni að læra fyrir samræmdu prófin sem eru alveg að bresta á.

'Sérðu ekki sixpackinn?'

Helga

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 16:45:05 / Helga

Veikin að fara

Helga er búin að vera veik síðustu [þarf víst að telja] 5 daga! 5 daga, það er nú frekar mikið. Alla vega miðað við Helgu sem venjulega er við hestaheilsu. Að vera við hestaheilsu? Af hverju segir maður það? Eru hestar eitthvað sérlega heilsuhraustir? Og ef svo, afhverju viljum við vera með sömu heilsu og hestar? Eigum við þá ekki bara að byrja að fara til dýralæknis?

Helga hefur reynt að horfa á sjónvarpið í leiðindum sínum. Það tókst ágætlega. Horfði gjörsamlega á alla dagskrá Skjás eins á sunnudaginn þar með talið eitt stykki heilsuþátt og annað stykki þátt um börn. Einmitt þar sem áhugasvið mitt liggur, heilsa og börn.:$

Helgu langar í skó. Vans & Converse. Helst í gær. Hana langar líka til Danmerkur en það er löngu úr sögunni. Sumarið má líka koma á morgun, veturinn er orðinn þreyttur. Ef að sumarið getur ekki komið á morgun má það vinsamlegast skila því til vorsins að koma á stundinni.

Helga hefur tjáð sig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 15:15:16 / Helga

Náttfatapartý

Hæ, hæ. Mér datt í hug að fara aðeins að blogga þar sem ég hef gjörsamlega vanrækt þessa bloggsíðu mína.

Á fimmtudaginn kom 'Concert-team' frá Jesus Revolution Army í skólann hjá mér og sýndi einn dans og eitt drama. Svo voru tónleikar um kvöldið, The End of Ages, og það er bara eitt orð sem getur lýst þeim, VÁ! Þeir voru ekkert smá flottir.
Í gær tók ég svo strætó í bæinn til hans ástkæra afa míns sem að skutlaði mér svo niður í kirkju þar sem að Jesus Revolution Army voru aftur með tónleika og þeir voru alveg jafn flottir í annað skiptið ;) Hitti líka eiginlega alla vini mína þannig að nú líður mér frekar vel.

Á þriðjudaginn byrjaði (og endaði) miðasalan á Samfés. Þetta var algjört rugl. Það voru bara 63 miðar á öllu Akranesi! Borgarnes fengu alveg 83 miða og það eru miklu færri þar. Fáránlegt. Ég er númer 20 á biðlista og Sunneva númer 21. Ég býst samt ekki við að fara þar sem mig langar ekkert að fara ein, engin af vinkonum mínum kemst. Nema ein sem að á víst að vera vinkona mín en það er allt annar fótleggur.

Þessi vika er búin að vera hálfgerður pirringur þar sem að í gær fengum við loksins að vita hvort við færum eða færum ekki til Danmerkur. Svarið? Við förum ekki. Við fáum enga styrki og það voru alltof margir sem að gátu ekki borgað mismuninn. Fúlt. En hey, við fáum að fara í Skagafjörðinn og í River Rafting. Jibbý [not]:evil: Mig langaði svo ógeðslega til Danmerkur.

Svo er ég búin að vera nördast þessa viku. Fór í stærðfræðikeppnina á miðvikudaginn, algjör nördi. Veit ekkert hvernig mér gekk. Hef ekki hugmynd um hvenær við fáum að vita það, ekki það að mér eigi eftir að ganga vel. Þessi dæmi voru frekar erfið. :$

Áslaug er að halda upp á afmælið sitt núna. Fullt af 11 ára stelpum í náttfatapartý, en gaman fyrir mig. Ég verð örugglega komin með æluna upp í háls í kvöld.

O.C! Þriðja serían er byrjuð og ég er núna alltaf límd við sjónvarpið á mánudögum. Líklega með \'tissjú\' við hliðina á mér. Þetta er svo svakalega mikið drama. Æ, Dóri játaði fyrir okkur stelpunum í bekknum að hann hefði grátið yfir Lion King og O.C. Krúttlegu tilfinningaríku gaurar.

En núna er ég að pæla í að hætta að blogga þar sem stelpurnar (sem eru 5) eru að fara að horfa á Herbie. Yay! Lindsay Lohan! Nú missi ég mig í pirrheitum :S

Skal reyna að blogga meira á næstunni. Ef ekki bara til að láta ykkur vita að ég lifði náttfatapartýið af.

Helga
XxX
 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6